Heim / Derhúfa fyrir fólk úr barrflokki
Derhúfa fyrir fólk úr barrflokki
4.200 kr
Við trúum því að fólk eigi sér innri plöntu og að hún geti verið öflugt verkfæri til að skilja sig og tengjast umhverfi. Þú getur tekið plöntupersónuleikapróf (https://mannyrkja.com/2-Plant-Personality-Test) sem gefur til kynna hvaða plöntuflokk þú tilheyrir. Það getur verið gott að eiga derhúfu með tilsvarandi plöntuflokki eða með þeim plöntuflokki sem þig langar helst að tilheyra. Derhúfurnar eru úr bómull.
Meira um barrpersónuleika:
Barrtréð er staðfast og hefur sterkar rætur sem veita öryggistilfinningu. Það stendur á eigin fótum og kemur hlutum í verk. Barrtré þurfa að vera meðvituð um umhverfi sitt því sterkar rætur þeirra þurfa rými til að vaxa. Barrtréð þarf að keppa um rými og því er mikilvægt að það rækti hæfnina til að lifa í sátt við aðrar plöntur. Barrtrjátegundir eru ekki margar en þær gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki í vistkerfum og stuðla að vexti fjölda annarra plantna. Barrtré vinna verk sín án mikilla tilþrifa, þau geta átt það til að sýna ást sína með því að borga fyrir bílpróf frekar en að segja það með orðum. Ef þú vilt vita meira um plöntuflokka og mannyrkju geturðu kíkt á heimasíðu Mannyrkjustöðvarinnar (https://mannyrkja.com/).
Efni: Bómull