Heim / Derhúfa fyrir fólk úr burknaflokki
Derhúfa fyrir fólk úr burknaflokki
4.200 kr
Við trúum því að fólk eigi sér innri plöntu og að hún geti verið öflugt verkfæri til að skilja sig og tengjast umhverfi. Þú getur tekið plöntupersónuleikapróf (https://mannyrkja.com/2-Plant-Personality-Test) sem gefur til kynna hvaða plöntuflokk þú tilheyrir. Það getur verið gott að eiga derhúfu með tilsvarandi plöntuflokki eða með þeim plöntuflokki sem þig langar helst að tilheyra. Derhúfurnar eru úr bómull.
Meira um burknapersónuleika:
Burknar geta vaxið við ólíkar aðstæður. Þeir hafa tilhneigingu til að halla sér upp að öðrum plöntum en geta þó staðið á eigin fótum. Burkninn getur því bæði verið í forgrunni og í bakgrunni. Hann þarf að vera meðvitaður um rætur sínar svo hann verði ekki of háður þeim sem standa við hlið hans.
Burkninn er góður samstarfsfélagi. Sterkt innsæi og hið óvænta eru styrkleikar burknans. Ef þú vilt vita meira um plöntuflokka og mannyrkju geturðu kíkt á heimasíðu Mannyrkjustöðvarinnar (https://mannyrkja.com/).
Efni: Bómull