Heim / Derhúfa fyrir fólk úr mosaflokki
Derhúfa fyrir fólk úr mosaflokki
4.200 kr
Við trúum því að fólk eigi sér innri plöntu og að hún geti verið öflugt verkfæri til að skilja sig og tengjast umhverfi. Þú getur tekið plöntupersónuleikapróf (https://mannyrkja.com/2-Plant-Personality-Test) sem gefur til kynna hvaða plöntuflokk þú tilheyrir. Það getur verið gott að eiga derhúfu með tilsvarandi plöntuflokki eða með þeim plöntuflokki sem þig langar helst að tilheyra. Derhúfurnar eru úr bómull.
Meira um mosapersónuleika:
Mosinn hefur mjúka nærveru og óttast ekki að gefa sér tíma til að aðlagast nýjum aðstæðum. Mosinn er frumkvöðull og lunkinn við að finna vaxtartækifæri á óvæntum stöðum. Mosinn er sterkur og þolir erfiðar aðstæður, bæði þurrka og flóð, en er þó viðkvæmur fyrir beinum ágangi eins og öskrum.
Mosar eru samfélagsplöntur. Þeir hafa ekkert rótarkerfi og styðja því hver annan til að halda velli. En þeir styðja ekki aðeins sína eigin tegund, heldur ryðja einnig brautina svo aðrir geti fetað í plöntuspor þeirra. Allir ættu að hafa mosa í lífi sínu. Ef þú vilt vita meira um plöntuflokka og mannyrkju geturðu kíkt á heimasíðu Mannyrkjustöðvarinnar (https://mannyrkja.com/).
Efni: Bómull