Grallara­gerðin

Heim / Derhúfa fyrir fólk úr blómaflokki

Derhúfa fyrir fólk úr blómaflokki

4.200 kr

Við trúum því að fólk eigi sér innri plöntu og að hún geti verið öflugt verkfæri til að skilja sig og tengjast umhverfi. Þú getur tekið plöntupersónuleikapróf (https://mannyrkja.com/2-Plant-Personality-Test) sem gefur til kynna hvaða plöntuflokk þú tilheyrir. Það getur verið gott að eiga derhúfu með tilsvarandi plöntuflokki eða með þeim plöntuflokki sem þig langar helst að tilheyra. Derhúfurnar eru úr bómull.

Meira um blómapersónuleika:
Blómstrandi plöntur eru fjölbreytilegasti flokkurinn. Þar á meðal eru bæði birkitré og friðarlilja. Blóm eru fyrirferðamikil og eiga það til að gera hluti án þess að hugsa þá til enda. Þau eiga mjög erfitt með lognmollu og kyrrstöðu (status quo) og gera því oft óvænta hluti án samhengis til að hreyfa við heiminum. Blómin vilja helst vera fremst á sviðinu enda skera þau sig úr á sinn einstaka og fallega hátt. Þau sveigjast með vindinum og því er sérstaklega mikilvægt fyrir blóm að vera vel rótföst. Ef þú vilt vita meira um plöntuflokka og mannyrkju geturðu kíkt á heimasíðu Mannyrkjustöðvarinnar (https://mannyrkja.com/).

Efni: Bómull

Derhúfa fyrir fólk úr blómaflokki Derhúfa fyrir fólk úr blómaflokki